Sigþrúður Ármann

RÖDD ATVINNULÍFSINS Á ALÞINGI

Ég býð mig fram í 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi.

Öflugt atvinnulíf er grundvöllur velferðar, framþróunar og hagsældar fyrir alla. Það er því hagur okkar allra að efla atvinnulífið

Sigþrúður Ármann

Alþingi á að vera vettvangur fyrir uppbyggilega og málefnalega umræðu þar sem mótuð er skýr framtíðarsýn. Sem alþingismaður mun ég vinna markvisst að því að efla samtalið milli atvinnulífs og stjórnvalda.

Sigþrúður Ármann

Velkomin á vefinn minn

Sigþrúður Ármann

Rödd atvinnulífsins inn á Alþingi
Öflugt atvinnulíf er grundvöllur velferðar, framþróunar og hagsældar fyrir alla. Atvinnulífið stendur undir  grunnstoðum samfélagsins; menntakerfinu, heilbrigðiskerfinu, velferðarkerfinu, samgöngum, innviðum og menningu. Það er því hagur okkar allra að efla atvinnulífið.

Þurfum hvetjandi umhverfi fyrir alla aldurshópa
Við fæðumst með ólíka forgjöf. Bakland fólks er misjafnt en við þurfum öll að fá tækifæri til að nýta hæfileika okkar. Til þess þurfum við sem samfélag að standa saman og hafa það að sameiginlegu markmiði að byggja upp samfélag sem stuðlar að velferð, lífsgæðum og efnahagslegri sjálfbærni til framtíðar. Við þurfum að skapa hvetjandi umhverfi þannig að hver og einn finni hvata til þess að láta til sín taka. Þennan hvata má ekki skerða þegar fólk kemst á efri ár. Tækifærin eru víða og við þurfum að virkja kraftinn. Það er atvinnulífsins að leiða vöxt á vinnumarkaði og fjölga störfum en ekki hins opinbera. Það þarf að minnka umsvif í rekstri hins opinbera og útvista verkefnum.

Aukin verðmætasköpun
Við þurfum að auka verðmætasköpun með öflugri innlendri framleiðslu og treysta stoðir útflutningsfyrirtækja því að þar liggur grunnurinn að gjaldeyrisöflun landsins. Þannig tryggjum við stöðug lífskjör í landinu og löðum að erlendar fjárfestingar. Við þurfum að efla atvinnulífið og auka ráðstöfunartekjur fólks með lágum sköttum og gjöldum. Samkeppnisforskot okkar er græn orka og við þurfum að nýta auðlindir okkar á sjálfbæran hátt til uppbyggingar atvinnulífs hér á landi.

Menntun, heilbrigði og nýsköpun
Aðgangur að framúrskarandi og fjölbreyttri menntun og góðu heilbrigðiskerfi er lykilatriði fyrir samfélagið allt. Við eigum að efla nýsköpun á öllum sviðum og bjóða upp á valfrelsi. Framþróun byggir á nýsköpun.

Með víðtæka reynslu úr atvinnulífinu
Ég hef verið fulltrúi í fjölskylduráði í Garðabæ síðastliðin 7 ár. Undir nefnina heyra félagsleg málefni, málefni eldri borgara, málefni fatlaðra, barnaverndarmál og jafnréttismál. Ég þekki því vel til þessara mikilvægu málefni og veit hve þýðingarmikið það er að vanda vel til verka.

Ég brenn fyrir samfélagsmálum og finnst fátt meira gefandi en að eiga góð samskipti við fólk. Ég hef verið framkvæmdastjóri öflugs umræðuvettvangs í 15 ár, þar sem viðfangsefni eru rædd þvert á atvinnugreinar á málefnalegan, uppbyggilegan og árangursríkan hátt.

Nýir tímar kalla á ný vinnubrögð – þurfum skýra framtíðarsýn
Alþingi á að vera vettvangur fyrir uppbyggilega og málefnalega umræðu þar sem mótuð er skýr framtíðarsýn. Sem alþingismaður mun ég vinna markvisst að því að efla samtalið á milli atvinnulífs og stjórnvalda.

Virk í starfi Sjálfstæðisflokksins
Í rúma tvo áratugi hef ég tekið virkan þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins og sinnt ýmsum trúnaðarstörfum. Í dag er ég formaður Sjálfstæðisfélagsins í Garðabæ. Ég aðhyllist stefnu flokksins um frelsi einstaklingsins, atvinnufrelsi og jafnrétti. Ég býð mig fram í prófkjöri til að geta unnið að krafti á Alþingi að þessum hugsjónum

Ég óska eftir þínum stuðningi í 3. sætið.

Áherslur

Öflugt atvinnulíf

Menntun, heilbrigði, nýsköpun

Hvetjandi umhverfi fyrir alla

Hafðu samband við Sigþrúði

Ég vil heyra í þér!

Hringdu í mig

699-6613

Sendu mér póst

Skráðu þig á póstlistann minn


This error message is only visible to WordPress admins
There has been a problem with your Instagram Feed.
Hvernig kýs ég?

Um prófkjörið

Prófkjörið fer fram dagana 10., 11. (kl.17-20) og 12. júní. (kl. 9-18)

Í Garðabæ – Sjálfstæðisfélag Garðabæjar, Garðatorgi 7
Í Hafnarfirði – Sjálfstæðisfélag Hafnarfjarðar, Norðurbakka 1a
Í Kópavogi, Sjálfstæðisfélag Kópavogs, Hlíðarsmára 19 (12. júní í Lindaskóla)
Í Mosfellsbæ – Sjálfstæðisfélag Mosfellsbæjar, Þverholti 2
Á Seltjarnarnesi – Sjálfstæðisfélag Seltirninga, Austurströnd 3

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram í Valhöll, Háaleitisbraut 1, Miðvikudag 9.júní frá kl. 10 til 19, Fimmtudag og Föstudag 10.júní frá kl. 10-16.

Allir flokksfélagar 15 ára og eldri búsettir í kjördæminu geta tekið þátt í prófkjörinu.

Hér getur þú skráð þig í flokkinn til að taka þátt í prófkjörinu. 

Smíðað af TGS 2021